|
|
 |
| |
Tuesday, September 06, 2005 |
Jebb gafst uppá þessari, alltaf verið að kvarta yfir því að erfitt væri að komast á hana og oft ekki hægt að kommenta (ég vona bara að það hafi verið ástæðan fyrir litlum undirtektum á kommentakerfinu ;))
Nýja síðan er sem sagt www.blog.central.is/elvaru svo endilega kíkið á það :)
Posted at 02:22 am by Elva
| |
Monday, September 05, 2005 |
Búin að eiga alveg meiriháttar helgi hérna á Íslandi og er bara eiginlega alveg búin að sætta mig við að vera komin heim. Var reyndar að vinna alla helgina sem samanstendur af 12 tíma vöktum svo í rauninni ætti maður að vera að gera lítið annað en a vinna en samt tókst mér að gera alveg helling. Fór t.d. á landsleikinn Ísland-Króatía á Laugardalsvellinum á laugardaginn og af því að við vorum með hjólastól sátum við á hlaupabrautinni við hliðina á varamannabekk íslenska liðsins... það fannst henni Elvu nú ekkert sérstaklega leiðinlegt skooo. Ógó svekkjandi úrslit samt, eins og leikurinn byrjaði vel fyrir okkur og ég hélt meira að segja á tímabili að spádómsgáfa mín fengi að njóta sín þegar ég spáði 2-0 fyrir okkur... en það gekk ekki eftir, spurning um að snúa sér að einhverju öðru en spámennsku hmmmm.
Svo var það sem sagt djammið á laugardagskvöldið, eftir 12 tíma vakt og á leiðinni á aðra 12 tíma vakt daginn eftir, þá bara djammaði ég hina 12 tímana þar á milli... og þetta er eiginlega sagt í orðsins fyllstu merkingu. Sigrún Ósk, Jóhanna og Eygló komu hingað og sötruðu með mér bjór og að sjálfsögðu lá leiðin í 101. Takk Lára fyrir að bjarga okkur, það var nebblega enga leigubíla að fá :) Svo voru Hressó, Prikið, Ari í Ögri (sem ég var að fara á í fyrsta skipti á djamminu og var bara geeigt skemmtó), Celtic og Hverfis straujaðir og svo var endað á Hlölla og hinni 5 km löngu leigubílaröð. Sem sagt ekta íslenskt djamm eins og það gerist best, takk dömur mína fyrir gott djamm :)
Og svo fyrst ég var byrjuð á þessu fótboltafári þá var ákveðið í vinnunni að skella sér á íslensku myndina sem heitir Strákarnir okkar, mér fannst hún nú eiginlega frekar slök en samt af því að hún er íslensk vill maður ekki alveg dæma hana leiðinlega. Hann stóð sig samt vel aðalleikarinn, nú veit ég ekki hvort hann er hommi eða ekki en að geta leikið það skil ég bara ekki, þeir sem það geta fá hrós frá mér :)
Jæja bið ykkur vel að lifa þangað til næst...bæjóspæjó
Posted at 01:07 am by Elva
| |
Thursday, September 01, 2005 |
Úfff byrjaði að vinna í gær, byrjaði í ræktinni í gær og byrja í skólanum á morgun!!! Ætla svo vonandi að byrja að djamma um næstu helgi :) smá fyrirstaða reyndar á þeim fyrirætlunum, þar sem ég á að vinna en maður reynir nú kannski að laga þær aðstæður að eigin hagsmunum :)
Það er bara alveg ágætt að vera komin heim, sakna samt London hryllilega og við Tinna vorum að tala um í dag að skella okkur saman út ekki síðar en í febrúar og taka líka í leiðinni eins og eina létta kóræfingu með liðinu... djö... væri það gaman. Það er svo ógeðslega kalt hérna að ég þurfti bara hreinlega að taka fram vetrarúlpuna í gær ojojoj og svo er bara steik í London og reyndar skilst mér í Bournemouth líka :( Það er kannski bara ágætt að venja mann við kuldann bara strax ha... næstum kominn vetur á Íslandinu góða, skólarnir að byrja (sumir byrjaðir) og verslunarmannahelgin búin og svonna.
Náði að hitta alveg ótrúlega mikið af fólki í dag en tókst samt líka í leiðinni að sofa út svo það varð bara mikið úr þessum degi hjá mér.
Ég var stundum að spá í því að úti í London eru svona sérstakar Bus lanes þar sem bara strætóarnir mega keyra svo þeir geti haldið áætlun í allri umferðinni. Þetta virkar nú ekki alltaf neitt sérstaklega vel þar sem að aðrir "óbreyttir" bílar stunda það að leggja á þessar reinar svo strætó getur ekki nýtt sér þær og situr sem fastast í umferðinni. En allavega svo sá ég að það er komin svona Strætó akrein á Miklubrautinni þar sem allar framkvæmdirnar hafa verið og ég fór svona að spá í því hvort það væri virkilega mjög mikil þörf á svona hér, ok kannski á morgnana frá hálfátta til átta og svo eftir hádegi svona um fimmleytið en er það ekki bara it? Ég veit það ekki... mér finnst allt í einu Reykjavík vera orðin svo UKsinnuð, mætti líka rauðum tveggja hæða sightseeing strætó (svona eins og maður sér í UK, bara búið að breyta t.d. London eða Bournemouth í Reykjavík, þ.e. Reykjavík Sightseeing í staðinn fyrir London Sightseeing) æi ég veit ekki, við erum bara lítið land með litla borg og eigum bara að vera svoleiðis... ekki alltaf að herma eftir stóru löndunum, halda í það sem gerir okkur öðruvísi. Annars er ég líka alltaf að átta mig betur og betur á því hvað allt er dýrt á Íslandi, nú fannst mér London nú frekar dýr (nema kannski H&M, New look og Primark) en það eina samt sem ég fann að var dýrara í London en hér var að sjálfsögðu verð á húsnæði sem er bara geðveiki þar úti (og við virðumst vera að stefna hratt í sömu átt) og svo verð í sund! Fékk nett taugaáfall og fann hökuna leka niður á nafla þegar ég fór í fyrsta skipti í sund þarna um daginn (loksins mundi ég eftir að býsnast yfir þessu hérna á netinu) en allavega þá var þetta sundlaug þar sem var bæði innilaug og útilaug, það var voða gott veður svo mig langaði í útilaugina en Lara vildi fara í innilaugina svo ég ætlaði að vera svona samningaglaður laganemi og semja við hana um að byrja á öðrum hvorum staðnum og enda svo á hinum, nei ekki hægt! Þú borgar þig annað hvort í innilaugina eða útilaugina og ef þú ætlar í báðar þá þarftu að borga fullt verð fyrir hvora laug!!! Og sko verðið í innilaugina var 5 pund fyrir mig (650 krónur ísl, gróflega reiknað) og 7 pund í útilaugina (kannski svona 900 kall) og ég sem tími aldrei að fara einu sinni í Bláa lónið hérna heima! Svo það kostaði fyrir okkur Löru að fara einu sinni á dag í sund í eina viku (í mesta lagi í klukkutíma í senn) svona um það bil 6500 ísl krónur, og NB enginn afsláttur veittur fyrir skólafólk og ekki séns að fá að kaupa svona eins og kannski 10 miða á verði 12 eða eitthvað þannig... það var bara horft á mig eins og ég væri útlendingur! Ohhhh hvað var gott að losa um þetta, þetta er búið að liggja á mér eins og heit lumma síðustu tvær vikurnar... spurning um að skella sér í laugarnar og njóta þess að fara ódýrt í sund, bara verst hvað er orðið helv... kalt :(
Posted at 12:22 am by Elva
Jamm það er bara komið að því að ég verð bara aftur Elva en ekki LondonElva, ekki á morgunn heldur hinn lendir maður bara á Íslandi í kuldanum brrrr.... Ótrúlegt að þetta ár sé búið, skrítið að vera að kveðja alla sem manni finnst maður samt vera nýbúinn að kynnast og vita svo ekkert hvort eða hvenær maður sér þetta fólk aftur. Ég er nú reyndar með þá dagdrauma í farteskinu að geta kíkt í stutta heimsókn kannski í febrúar en ég ætti nú kannski að byrja á því að komast heim til Íslands og fara í heimsókn til Danmerkur áður en ég ákveð eitthvað með ferðalag í febrúar. En talandi um að vera að fara heim, ég hefði aldrei trúað því hvað ég næ að sanka að mér miklu drasli á einu ári. Ég er búin að troðfylla tvær stórar ferðatöskur og eina litla flugfreyjutösku og verð svo með tvær töskur í handfarangur og Icelandexpress vill ekkert fyrir mig gera, bara borga 960 kr á kg takk fyrir kærlega!!! Held þeir ætli að reyna að halda sér á floti með þessu fjárframlagi mínu núna um helgina en kannski næ ég samt að skjóta þeim ref fyrir rass og skil bara eina tösku eftir hérna... aldrei að vita hvað fátækum námsmanni dettur í hug að gera sko... Ég sem ætlaði að koma ógeðslega brún heim er orðin skjannahvít því London er búin að syrgja það í viku núna að ég sé að fara, þvílíkar rigningar og svo er búið að kólna svo líka að ég var alltaf að vakna í nótt vegna kulda samt var alveg 12 stiga hiti þegar ég fór fram úr í morgun. Það verður gæfulegt að koma til Íslands!
Eina sem ég hef náð að gera í túristamálum í London síðan ég kom aftur úr fríi hefur verið að fara að skoða dómshúsið sem heitir Royal Court of Justice og síðan líka Old Bailey sem er Central Criminal Court. Aðaldómshúsið er rosalega flott bygging og það er opinn aðgangur fyrir almenning, en mér varð svo mikið um hvað þetta var allt stórt og öryggisverðir og öryggishlið og skanni fyrir allar töskur þegar maður kemur inn að ég eiginlega sneri við um leið og ég var komin inn fyrir hliðið. Þetta var aðeins of mikið fyrir mig, en langar að fara aftur seinna, kannski með einhverjum með mér sem nennir að labba um allt húsið og kannski hlusta á eins og einn málflutning.
Á morgun er ég að fara með familiunni á söngleik sem heitir Dancing in the Street og hún Svana sem var með mér í kórnum er aðstoðarleikstjóri í, það hlýtur að vera voða skemmtilegt, ég hlakka allavega mikið til. Og svo er síðasti (eða seinni réttara sagt) einkatíminn minn í tennis, ótrúlega ódýrt og ótrúlega skemmtilegt... get bara ekki beðið.
Jæja börnin að verða vitlaus inní eldhúsi, segi þetta því gott í bili og sé ykkur í næstu viku :)
Posted at 07:18 pm by Elva
Mér finnst eitthvað svo langt síðan ég skrifaði síðast en ég hef bara ekkert komist á netið fyrr. Bournemouth í seinna skiptið var bara miklu betra en fyrra skiptið, veðrið var betra og ég gerði meira, náði meira að segja hálfum degi á ströndinni!!!! Ég dró Skástu með mér í ferðalag á sunnudeginum og við keyrðum framhjá ógó flottum kastalarústum sem heitir Corfe Castle og fórum þaðan í lítinn bæ sem heitir Swanage, dóluðum okkur þar og eyddum fullt af pening í einhverjum spilasal... græddi samt alveg heilan bangsa á því :o) Og fórum svo í opnum strætó tilbaka meðfram allri strandlengjunni. Fengum alveg geggjað veður svo þetta var alveg meiriháttar. Á mánudeginum var Ásta María svo að vinna allan daginn svo ég ákvað að láta loksins verða af því að fara og skoða Stonehenge sem er skilst mér talið vera einhvers konar sólardagatal til forna, en ég tímdi ekki að borga mig inn og fékk því ekki leiðsögn um steinana. Þetta var nú ekki mjög merkilegt en samt nauðsynlegt að vera búin að skoða eftir að hafa verið hérna í UK í eitt ár. Eftir það tók ég rútuna til Salisbury þar sem ég eyddi öllum deginum í rölt um bæinn og skoðaði dómkirkjuna sem er ofsalega falleg. Þetta var alveg æðislegur bær og eiginlega hundleiðinlegt að þurfa að upplifa hann ein, en samt gat ég skemmt mér ágætlega. Þriðjudagurinn var sólbaðsdagur, þá fór Elvan á ströndina fyrir hádegi og svo fórum við í ógeðslega skemmtilegt tívolí um kvöldið. Þar var fullt af svona hryllilegum tækjum og ég komst að því að ég var bara eiginlega næstum því alveg frakkari en systir mín og vinkona hennar (pabbi heldur nebblega alltaf að ég sé svo mikill hræðslupúki en að skásta sé algjör hetja sko... en ég afsannaði alveg þá kenningu get ég sagt ykkur, með miklu stolti). Við fórum m.a. í tæki sem heitir Big Ben og er svona svipað og Gullturninn í tívolíinu í Köben, samt ekki eins hár, þetta er turn sem þú ferð rosalega hátt upp í og svo er tækið látið falla niður og svo pompar maður og pompar. Þetta er mjög skemmtilegt en ég er bara svo hryllilega lofthrædd (kom eiginlega sjálfri mér á óvart með það hvað ég hef versnað með þetta), það var alveg heiðskírt og útsýni yfir allt en ég bara varð að hafa augun lokuð því annars hefði bara liðið yfir mig. Ætlaði svo reyndar að fara aftur, bara til að ögra sjálfri mér en ákvað á síðustu stundu að prófa annað tæki sem mig langaði svo í en þeim langaði ekkert í svo ég fór í það á meðan þær fóru aftur í turninn. Mjög skemmtilegt, töpuðum okkur aftur í svona spilasal og aftur fékk ég bangsa :o)
Kom svo bara heim og byrjaði að vinna aftur. Við sáum engin ummerki eftir eina eða neina mús þegar við komum tilbaka (enda var ekki matararða eftir í húsinu þegar við fórum) en til öryggis og mín vegna (held ég) voru fengnir hérna menn til að loka því sem við héldum að væri uppgangurinn fyrir þær, ekkert fannst og þessu var lokað þannig að engin mús ætti að geta komist upp. Ég sannfærðist nú ekki alveg en lét mig samt hafa þetta, einhvern vegin rólegri yfir því að vera ekki ein í húsinu með músinni. Það var svo á laugardaginn sem ég heyrði einhvern hlaupa í felur þegar ég fór inn í eldhús en þá héldu þau að ég væri bara orðin ímyndunarveik... þangað til þau opnuðu skúffurnar þar sem allur þurrmatur er geymdur (nota bene ég var búin að segjast hafa heyrt hljóð þaðan líka en það var stimplað sem ímyndunarveiki) og viti menn, það var bara einhver búin að vera að hafa það mjög gott þar og gæða sér á hinum ýmsustu góðgætum. Þá var aftur hringt í einhverja menn sem ætla að koma og loka fyrir eitthvað annað gat sem varð víst eftir þannig að það var hægt að komast upp í innréttinguna innan frá. Familian var samt sannfærð um að það væri búið að loka fyrir allt þannig að þær ættu ekki að geta komist inn í eldhúsið nema bara þarna inn í innréttinguna. úfff þetta er eiginlega orðið rugl en ég verð að klára þessa sögu... Svo áðan kom ég heim og fór í eldhúsið og heyrði einhver hljóð í blaðagrindinni okkar á gólfinu, ég hljóp fram, lokaði hurðinni sem er með gleri í og stóð svo fyrir utan hurðina og ákvað að fylgjast með innum glerið hvort ég sæi kvikindið og þarna trítlaði hún voðalega varlega orðin stór og gerðarleg, grá, feit, loðin og með langt skott... ojojojojojojojojojojoj, nú má Robert bara gera eins mikið grín að mér og hann vill, þetta var sko engin ímyndunarveiki í mér og þetta er heldur ekki "lítil og sæt mús" hún er stór og ógeðsleg!!!!
Og bara svona til að koma með eina frétt hérna í lokin, þá hefur planið hér breyst og ég næ ekki að koma heim og djamma laugardaginn 27.ágúst eins og ég ætlaði heldur kem ég heim daginn eftir á sunnudeginum 28.ágúst. Svo þið verðið bara að njóta þess að djamma í síðasta skipti án mín áður en ég kem, en svo ætla ég að vera rosalega dugleg seinna bara í djamminu :o)
Posted at 02:22 pm by Elva
jamm kom hingad a midvikudaginn, systir minni til omaeldrar gledi... greyid er buin ad vera stanslaust med gesti inna ser i 2 eda 3 vikur en eg sagdi henni bara ad hafa engar ahyggjur af mer, hun aetti bara ad gera thad sem hun vildi gera og eg myndi bara turistast herna eins og hentadi. Eg byrjadi a thvi ad fara nidur i bae i sma verslunarleidangur og akvad svo ad rolta heim af thvi ad klukkan var svo litid, a leidinni labbadi eg framhja bioi og sa ad thad var akkurat ad byrja syning a War of the Worlds med alveg uppahaldsleikaranum minum (eda thannig) svo eg akvad bara ad skella mer a hana thar sem eg hafdi ekkert annad betra ad gera. Hun var nu svoldid ykt og Tommi Krus natturulega alltaf sama hetjan, en jaja thetta var agaetisafthreying. I dag gat eg svo bara farid i solbad... loksins let hun vinkona min sja sig aftur, sat uti i gardi og hafdi thad alveg ogedslega gott. I kvold aetlum vid systur svo ad kikja adeins a pobbinn, Ama litla er svo gasalega threytt eftir heimsokn vinkvenna sinna (skilst ad thad hafi verid tekid ansi vel a thvi) ad hun meikar sko ekki meir en bara local pobbinn sko! A sunnudaginn er planid svo ad fara ad skoda Corfe castle og fara svo i einhvern bae thar sem er eitthvad karnival i gangi og a manudaginn a loksins ad skella ser og skoda Stonehenge og Salisbury. Fann nokkud odyrar ferdir thar sem madur kaupir ser dagsmida og getur svo bara hoppad i og ur straeto eins og madur vill. Typiskt samt ad thad verdi rigning og stormur af thvi ad eg hlakka svo til, ekki ad eg se neitt svartsyn eda neitt thannig samt ;o)
Musafrettirnar eru thaer helstar ad eg gerdist alveg otruleg hetja ad eigin mati og akvad ad thrifa allt husid heima a thridjudaginn af thvi ad vid vorum baedi ad fara i burtu a midvikudeginum. Ekkert hafdi komid i musagildrurnar en samt alltaf ad heyrast einhver hljod i eldhusinu. Eg vard ekki var vid neitt a medan eg threif og for svo bara ut ad leika mer eftir thrifin. Thegar eg kom aftur heim hafdi verid farid i adra gildruna, braudid bordad, gildran smollid a, gildran a hvolfi en... engin mus!!! Robert akvad sem sagt eftir thetta ad vid gaetum ekki meira gert fyrr en vid kaemum aftur a midvikudaginn i naestu viku. Eg segi nu bara ad sem betur fer a eg ad koma a sama tima heim og thau og aetla ad vera eins lengi a leidinni heim og eg get, vona bara ad thad verdi engin seinkun a fluginu hja theim, meika ekki ad koma tharna fyrst og sja hvernig allt er utlitandi. Thaer aettu allavega ad geta skemmt ser vel tharna a medan thad er enginn ad trufla. Ojjjjjjjjj
Svo er eg bara ad koma heim eftir 3 vikur, thetta er alveg otrulegt. Planid er enntha ad skella ser beint a djammid eftir lendingu, vona bara aftur ad thad verdi engin seinkun a velinni, tha aetti eg ad na 101 a godum tima :o) Vona bara ad eg sjai sem flesta a djamminu.
Posted at 06:21 pm by Elva
Mýs, rottur og einn lítill kjúklingur
Þetta byrjaði allt fyrir einni og hálfri viku þegar við Dóra fórum að heyra hljóð frá pokaskápnum undir vaskinum í eldhúsinu. Roberti fannst við að sjálfsögðu ímyndunarveikar og hlustaði ekkert á okkur svo hann endaði á því greyið að þurfa að standa uppá stól, með pottaleppa á höndunum og kúst í hendi með opið út í garð og lokað inní eldhús að opna pokaskápinn og tæma allt út og finna hvaða kvikindi væri þarna undir. Ekkert kom í ljós en hins vegar sá hann að það var hola niður í gólfið svo við Dóra vissum náttúrulega alveg að það hefði verið rétt hjá okkur að eitthvað ógeðslegt hafði verið að leika sér að pokunum okkar. En þar sem ekkert fannst og við báðar, ímyndunarveiku konurnar fórum í frí daginn eftir var ekkert meira um þetta talað fyrr en daginn sem ég kom til baka, þ.e. á fimmtudagskvöldið síðasta. Þá hafði Robert skilið eftir musli í poka á eldhúsborðinu og það var búið að naga gat á pokann og musli út um allt, en aldrei fannst samt eða sást til kvikindisins og ég með verki í öllum líkamanum af spennu yfir því að rekast á mús. Á laugardaginn voru keyptar músagildrur og laugardagskvöldinu eyddum við mousehunters, ég og Robert, í að setja upp músagildrur og raða á þær girnilegum ostum. Ekki virkaði það og osturinn ekki snertur. Maður fór nú svona aðeins að róast og fór að bjóða fólki heim í mat um næstu helgi þegar ég átti að vera ein heima, passaði mig nú samt á því að vera ekkert mikið heima og borða helst ekkert af því sem er til hérna. En svo náttúrulega vaknaði ég í morgun eins og mín er von og vísa, fór niður til að fá mér minn mikilvæga morgunmat sem samanstendur meðal annars af ristuðu brauði. Ég næ í brauðið sem var alveg nýtt, ekki búið að snerta á því og viti menn, það var búið að naga risastórt gat og búið að borða nánast helminginn af brauðinu. ÉG henti því frá mér, greip jógúrtið mitt og hljóp inní stofu til að borða morgunmatinn minn, ég er sest þar, fer ég að heyra undarleg hljóð undir einhverju drasli þar svo ég stekk upp aftur og hleyp upp í herbergið mitt, skanna þar öll horn og kima, finn ekkert, kem mér fyrir og borða morgunmatinn. Fljótlega að því loknu lét ég mig bara hverfa að heiman og ákvað að koma ekki heim fyrr en undir kvöld þegar Robert væri við það að koma heim. Við komum nánast á sama tíma og ég sýni honum brauðið, þetta er ógeðslegt að sjá þetta svo honum hryllti meira að segja svoldið við og ég var að sýna honum hvar brauðið hafði verið þegar ég sá að það var búið að skríða inn í aðra brauðpakkningu sem við vorum með og borða helminginn af því brauði líka... oojjjjjojjjjjojjjjjojjjj ojjjjbaraogullabjakk. Músagildrurnar voru settar uppá á nýtt og í þetta skipti settum við að sjálfsögðu brauð í þær en eina sem er að við erum eiginlega orðin svoldið hrædd um að þetta séu engar litlar "sætar" mýs heldur að þetta séu rottur eða rotta því það var eiginlega scary hvað var búið að borða mikið af brauðinu. Þið verðið að fá framhaldið seinna en ég heimtaði sem sagt meindýraeyði og vildi láta eitra fyrir þessum viðbjóði en Robert vill láta reyna á gildrurnar áfram.
Þar sem hann er að fara til Íslands á miðvikudaginn hef ég litli kjúklingurinn ekki meiri kjark í mér en það að ég er að flýja heimilið og er að fara aftur til Ástu Maríu þar sem ég verð þangað til familian kemur aftur frá Íslandi... svo það varð ekki mikið úr því að túristast í London á meðan ég er í fríi!!!!
Fór annars að sjá Wedding Crashers um helgina og hún var nú bara alveg ágæt, ætla kannski ekkert sérstaklega að mæla með henni sem bíómynd af því að það er svo dýrt í bíó heima, myndi frekar taka hana á videó. Hérna nebblega er ódýrara að fara í bíó ef maður fer fyrir kl.6 en það er að leigja mynd á videoleigu. Annars er svo bara túristaplanið i Bournemouth það að láta vonandi loksins verða af því að fara og skoða Stonehenge, þ.e. ef ég finn einhverja ódýra dagsferð hjá þeim :)
Og öllum til mikillar gleði og undrunar þá var Elvan að skella inn nokkrum fleiri myndum, s.s. Bournemouth, R.E.M., tyrknesk hátíð, tívolí, Láru afmæli og svo nokkrar af familiunni hérna í Londres :) Njótið vel...
Posted at 10:27 pm by Elva
Jæja þá er maður komin úr fríinu en er samt ekki hættur í fríi, því fer nú fjarri... jájá! Fór í heimsókn til Ástu Maríu til Bournemouth á ströndina í viku og kom heim í gærkvöldi, það fór nú ekki betur en svo að það var bara rigning, rok og skítakuldi allan tímann og ég sem tók bara strandarföt með mér gekk um í gegnblautum gallabuxum allan tímann. Ég segi nú bara sem betur fer tók ég eina lokaða skó með mér, var nebblega að spá í að fara bara með sandala. Annars er Bournemouth bara dáldið krúttaralegur bær, gæti reyndar örugglega ekki eytt of miklum tíma þar, en strandlengjan er rosalega sjarmerandi og skemmtileg.
Nú á ég rétt tæpar 2 vikur eftir af fríinu mínu þangað til familien kemur heim, og það eru allir hér búnir að yfirgefa mig. Er að fara í eitt kveðjupartý í kvöld og það verður eiginlega mitt kveðjupartý í leiðinni því þegar ég var búin að hugsa um að halda mitt verður enginn hérna nema kannski Fatime og Antonella svo ég ætla bara að hrynja í það í kvöld vúhúúúúúú!
Það er svo langt síðan ég hef skrifað að ég veit ekki hvar ég á að byrja hmmm... R.E.M. tónleikarnir voru hreinasta snilld, þetta var SVO gaman að ég get ómögulega lýst því. Við náðum rosagóðum stæðum frekar framarlega þannig að mér tókst actually að fylgjast með tónleikunum af sviðinu, en Ásta María og Antonella sem eru aðeins lágvaxnari en ég, urðu að reyna að sjá á skjána sem voru við hliðina á sviðinu.
Fór svo á tyrkneska hátíð daginn eftir tónleikana og ég held ég hafi aldrei á ævinni lent í eins miklum hita og eins sterkri sól og þann daginn, held þetta hafi verið í fyrsta skipti á ævinni sem ég leitaðist eftir því að sitja í skugga. Var með sterka sólarvörn á mér en fannst sólin samt vera að brenna mig inn að beinum. Já og svo ég haldi nú aðeins áfram að tala um sólina, þá var ég orðin nokkuð brún á handleggjum og í andliti en á þeim 5 dögum sem ég var í Bournemouth þá er gjörsamlega allt farið og það er ekki bara vitleysa í mér, við Ásta María sáum það á hvor annarri, maður sá ekki litinn minnka neitt, hann var bara horfinn einn daginn!!!! Ógeðslega fúlt, eins og ég var fljót að fá lit hérna þá var ég líka ossalega fljót að missa hann aftur :(
Næstu tvær vikurnar er ég ein að spóka mig í London í fríi, og það er svona ýmislegt sem er búið að plana en það eina sem er er að samgöngurnar hérna eru svona aðeins í rugli, maður veit aldrei hvenær maður getur lent í því að lestarstöðvarnar séu tæmdar út af einhverju security alert og þá fara allar aðrar samgöngur svo sem strætóar í nágrenninu líka í rugl af því að það koma svo margir í einu... úf jæja en það verður bara að hafa það, ég hef allan þann tíma sem ég þarf næstu daga til að koma mér á milli staða :) Planið er meðal annars að fara í leikhús, fara í dýragarðinn, skoða dómshúsið hérna, fara í siglingu til Greenwich (þaðan sem tíminn er mældur við) já og svo veit ég ekki alveg hvort ég fari kannski í smá ferðalag út fyrir London, það fer eftir fjárhag, en þá er svona spurning hvort farið verði að skoða Stonehenge og Bath og svo jafnvel líka Leeds castle, en þetta er nú allt óráðið ennþá. Fyrsta mál á dagskrá er að vona að það verði ekki mikil rigning, þá er ekkert gaman að gera svona hluti.
Svo er ég búin að henda út nýju leigjendunum mínum sem bara borguðu ekki og ég nenni sko ekki að standa í svoleiðis kjaftæði svo ef þið vitið um GÓÐA leigjendur sem standa við sitt þá bara vitiði hvar ég er ;) Annars er ég svo að koma heim eftir tæpan mánuð, já já mánuður mínus 2 dagar þangað til ég kem. Planið var náttúrulega upphaflega að fara beint á djammið, byrja hérna á Stansted, halda áfram í flugvélinni, drekka tollinn á leiðinni frá KEF til REY og fara svo í 101 og djamma... en núna er ég eitthvað hálfhrædd við að plana svona þar sem Dóra og þau áttu að fara með Iceland express síðasta laugardagskvöld en það var bara ekkert flogið fyrr en á sunnudeginum af því að vélin var biluð, svo kannski kem ég bara ekkert heim fyrr en 28.ágúst í staðinn fyrir 27.ágúst. Ég dett þá bara í það á sunnudagskvöldi, er það ekki alveg hægt????
Posted at 01:42 pm by Elva
Snökt snökt, R.E.M. tónleikunum hefur verið frestað um eina viku og þá er ekki víst að ég fari yfir höfuð á tónleikana :( Lára mín verður farin heim og missir því af þeim, Antonella kemst líklega ekki, en Skásta er að reyna allt sem hún getur til að breyta vöktum í vinnunni og breyta rútumiðanum sínum til þess að komast á nýja dagsetningu sem er laugardagurinn eftir, eða 16.júlí. Ég hefði nú reyndar haldið að tónleikunum yrði frestað um lengri tíma, en þetta hentar mér ágætlega svo sem, þ.e. ef ég kemst.
Var að fá tölvupóst í morgun sem sagði "Elva ertu ekki að koma heim í næsta mánuði?" og ég fékk eiginlega bara nett sjokk sko, ég er í rauninni að koma heim í næsta mánuði en samt segi ég að það séu 2 mánuðir þangað til. Dagskráin hjá mér er nokkuð fullbókuð þann tíma sem ég á eftir, nema þarna í nokkra daga í ágúst þegar góðgerðarskjöldurinn er og ég er nú nokkuð viss um að enginn vilji koma hingað til að fara á þann leik, þrátt fyrir að ég haldi að London verði öruggasta borgin á næstunni eftir atburði gærdagsins.
Jæja það er verið að reka mig úr tölvunni, er enn heima með veikt barn. Svo ég sendi bara góðar kveðjur frá London...
Posted at 11:52 am by Elva
Já það hafa sko aldeilis verið bombur á ferðinni hér í London í dag en sem betur fer eru allir þeir sem ég þekki heilir á húfi. Og ég er farin að hallast að því frekar að þetta tengist G8 fundinum eða ég veit það ekki, Al-Kaída (eins og er skrifað heima) er víst búin að taka á sig verknaðinn. Annars hef ég ekki náð að fylgjast mikið með hvað er í gangi, planið er að leggjast fyrir framan imbann i kvöld og reyna að komast inn í málin. Stundum er nú gott að búa í fínu úthverfunum, en sem betur fer voru hvorki Dóra né Róbert á ferðinni í morgun á sínum vanalega tíma því að þetta voru þeirra stöðvar sem urðu fyrir sprengingum og á þeim tíma sem þau eru venjulega á ferðinni.
Það hafa sem sagt allar neðanjarðarlestarsamgöngur legið niðri í dag og ég var að fá póst um að það yrði eitthvað takmarkaðar ferðir á morgun, en mér skilst þó að allar aðrar samgöngur séu við það að komast í samt lag. Strætósamgöngur hérna uppfrá hafa þó gengið vel fyrir sig.
Takk kærlega allir fyrir öll símtölin og sms sem ég hef fengið í dag, alltaf gott að vita að maður eigi góða að :)
Ég hef nú löngum verið þekkt fyrir að vera síðust með fréttirnar og þær fréttir sem ég setti inn í morgun um Olympíuleikana og voru á allra vörum og í öllum fréttatímum voru bara löngu gleymdar og fallnar í categoríuna "old news!", það hefði ekki verið nema fyrir að ég kíkti óvart á mbl.is í morgun áður en ég fór heim úr skólanum og svo að hún Sigga hringdi í mig sem ég vissi um það sem var að gerast.
Sprengjukveðjur frá London,
Elva
Posted at 08:14 pm by Elva
|